Heimförin - Ásgeir Trausti
Lyrics by:Einar Georg Einarsson
Composed by:Ásgeir Trausti Einarsson
Heim á leið held ég nú
Hugurinn þar er
Hugurinn þar
Ljós um nótt lætur þú
Loga handa mér
Loga handa
Það er þyngsta raun þetta úfna hraun
Er þyngsta raun þetta úfna
Glitrar dögg gárast lón
Gnæfa fjöllin blá
Gnæfa fjöllin
Einn ég geng einni bón
Aldrei gleyma má
Aldrei gleyma
Löng er för lýist ég lít samt fram á veg
Er för lýist ég lít samt fram á veg
Lít samt fram á veg
Lít samt fram á veg
Lít samt fram á veg
Lít samt fram á veg
Heim á leið held ég nú
Hugurinn þar er
Hugurinn þar
Ljós um nótt lætur þú
Loga handa mér
Loga handa
Það er þyngsta raun þetta úfna hraun
Er þyngsta raun þetta úfna hraun
Þetta úfna hraun
Þetta úfna hraun
Þetta úfna hraun